Nokia 2600 classic - Upplýsingar um vottun (SAR)

background image

Upplýsingar um vottun (SAR)

Þetta farsímatæki uppfyllir viðmiðunarreglur um

áhrif af útvarpsbylgjum.
Þráðlausa tækið er útvarpssendir og móttökutæki. Það er

hannað með tilliti til leyfilegra marka um áhrif af

útvarpsbylgjum sem alþjóðlegar viðmiðunarreglur mæla

með. Þessar viðmiðunarreglur voru þróaðar af óháðu

V i ð b ó t a r ö r y g g i s u p p l ý s i n g a r

© 2007 Nokia. Öll réttindi áskilin.

61

background image

vísindastofnuninni ICNIRP og innihalda öryggismörk sem

ætlað er að tryggja öryggi allra, óháð aldri og heilsufari.
Í viðmiðunarreglum um útvarpsbylgjur úr þráðlausum

tækjum er notuð mælieiningin SAR (Specific Absorption

Rate). Efri mörk SAR, samkvæmt viðmiðunarreglum ICNIRP,

eru 2,0 vött/kílógramm (W/kg) að meðaltali á hver 10

grömm af líkamsvef. Mælingar á SAR eru gerðar í

hefðbundnum stöðum þegar tækið sendir af mesta leyfða

styrk á öllum mældum tíðnisviðum. Raunverulegur SAR-

styrkur tækis í notkun getur verið lægri en hámarksgildið,

þar sem tækið er hannað til að nota aðeins þann styrk sem

þarf til að ná sambandi við símkerfið. Fjöldi þátta hafa áhrif

á styrkinn, t.d. hversu langt notandinn er frá grunnstöð.

Samkvæmt viðmiðunarreglum ICNIRP er hæsta SAR-gildi

fyrir notkun tækisins við eyra 0,95 W/kg.
Notkun aukabúnaðar getur valdið því að SAR-gildið verði

annað. SAR-gildi kunna að vera breytileg milli landa sökum

mismunandi upplýsingaskyldu, krafna og tíðnisviðs.

Viðbótarupplýsingar um SAR má finna í upplýsingum um

vörur á www.nokia.com.

V i ð b ó t a r ö r y g g i s u p p l ý s i n g a r

© 2007 Nokia. Öll réttindi áskilin.

62