Sprengifimt umhverfi
Slökkva skal á tækinu á svæðum þar sem hætta er á
sprengingum og fara að öllum tilmælum sem sjást á
skiltum og leiðbeiningum. Sprengifimt andrúmsloft telst
V i ð b ó t a r ö r y g g i s u p p l ý s i n g a r
© 2007 Nokia. Öll réttindi áskilin.
59
vera á svæðum þar sem yfirleitt er beðið um að drepið sé
á vél bifreiðar. Neistaflug á slíkum svæðum getur valdið
sprengingu eða eldi og haft í för með sér slys og jafnvel
dauðsföll. Slökkva skal á tækinu á eldsneytisstöðvum, svo
sem við eldsneytisdælur á bensínstöðvum. Virða skal
takmarkanir á notkun útvarpsbúnaðar í
eldsneytisgeymslum, svæðum þar sem geymsla og
dreifing eldsneytis fer fram, efnaverksmiðjum eða þar sem
verið er að sprengja. Svæði þar sem sprengihætta er mikil
eru oftast vel auðkennd, en þó ekki alltaf. Þau eru m.a.
neðri þilför skipa, aðstaða til efnaflutninga eða geymslu og
svæði þar sem efni líkt og korn, ryk eða málmagnir eru í
lofti. Þú ættir að kanna það hjá framleiðendum farartækja
sem nota jarðgas (líkt og própan eða bútan) til að ákvarða
hvort hægt sé að nota þetta tæki á öruggan hátt nálægt
þeim.