Venjulegur innsláttur texta
Ýttu endurtekið á takka, frá 2 til 9 þar til stafurinn birtist.
Það hvaða tungumál er valið hefur áhrif á það hvaða
bókstafir birtast.
Ef næsti stafur er á sama takka og sá sem þú hefur slegið
inn skaltu bíða þar til bendillinn birtist og slá svo inn
stafinn.
Til að fá aðgang að algengum greinarmerkjum og
sérstöfum ýtirðu endurtekið á 1 eða ýtir á * til að velja
sérstaf.