Hleðsla rafhlöðunnar
Athuga ber tegundarnúmer hleðslutækja áður en þau eru
notuð með þessu símtæki. Þetta tæki er ætlað til notkunar
þegar það er hlaðið orku frá AC-3 hleðslutækinu.
Viðvörun: Aðeins skal nota rafhlöður, hleðslutæki
og aukahluti sem Nokia hefur samþykkt til nota með
þessari tilteknu tegund. Ef notaðar eru aðrar gerðir gæti
öll ábyrgð og samþykki fallið niður og slíkri notkun getur
fylgt hætta.
Þessi sími er ætlað til notkunar með BL-5BT rafhlöðu.
T æ k i ð t e k i ð í n o t k u n
© 2007 Nokia. Öll réttindi áskilin.
14
Seljandi símans veitir upplýsingar um fáanlega aukahluti
sem samþykktir eru til notkunar. Þegar aukahlutur er
tekinn úr sambandi skal taka í klóna, ekki leiðsluna.
1. Stingdu hleðslutækinu í samband í innstungu.
2. Stingdu snúru hleðslutækisins í
samband neðst á símanum.
Ef rafhlaðan er alveg tóm geta liðið
nokkrar mínútur þar til hleðsluvísirinn
birtist á skjánum eða þar til hægt er að
hringja.