Nokia 2600 classic - Þráðlaus Bluetooth-tækni

background image

Þráðlaus Bluetooth-tækni

Með þráðlausri Bluetooth-tækni er hægt að tengja símann

með útvarpsbylgjum við samhæft Bluetooth-tæki sem er í

innan við 10 metra (32 feta) fjarlægð.
Þetta tæki er samhæft við Bluetooth Specification 2.0 + EDR

sem styður eftirfarandi snið: generic access, network

access, generic object exchange, advanced audio

distribution, audio video remote control, hands-free,

headset, object push, file transfer, dial-up networking, SIM

access og serial port. Til að tryggja samvirkni milli annarra

tækja sem styðja Bluetooth-tækni skal nota aukahluti sem

eru viðurkenndir af Nokia fyrir þessa tegund. Leita skal

upplýsinga hjá framleiðendum annarra tækja um samhæfi

þeirra við þetta tæki.
Takmarkanir kunna að vera á notkun Bluetooth-tækni á

sumum stöðum. Kanna skal það hjá yfirvöldum á staðnum

eða þjónustuveitunni.
Þau forrit sem notast við Bluetooth ganga á rafhlöðu

símans og draga úr endingu hennar.

S t i l l i n g a r

© 2007 Nokia. Öll réttindi áskilin.

34

background image

Uppsetning Bluetooth-tengingar

Veldu Valmynd > Stillingar > Tengi-möguleikar >

Bluetooth og gerðu eftirfarandi:
1. Veldu Nafn símans míns og sláðu inn heiti fyrir

símann.

2. Til að kveikja á Bluetooth velurðu Bluetooth >

Kveikja. táknar að kveikt sé á Bluetooth.

3. Til að tengja símann við hljóðaukahlut velurðu Leita að

auka- hlutum fyrir hljóð og tækið sem þú vilt tengjast

við.

4. Til að tengja símann við Bluetooth-tæki innan

svæðisins velurðu Pöruð tæki > Nýtt.
Veldu stillingu og svo Para.
Sláðu inn lykilorð (allt að 16 stafi) í símann þinn og

leyfðu tenginguna við hitt Bluetooth tæki.

Hafir þú áhyggjur af öryggi skaltu slökkva á Bluetooth-

virkninni eða breyta stillingunni Sýnileiki símans míns í

Falinn. Samþykktu aðeins Bluetooth beiðnir frá þeim sem

þú treystir.

Tengingu tölvu við internetið
Notaðu Bluetooth til að tengja samhæfu tölvuna þína við

internetið án PC Suite hugbúnaðar. Þjónustuveitan verður

að styðja aðgang að internetinu og tölvan þarf að styðja

Bluetooth PAN (Personal Area Network). Eftir tengingu við

S t i l l i n g a r

© 2007 Nokia. Öll réttindi áskilin.

35

background image

aðgangsstað símans og pörun við tölvuna opnar síminn

sjálfkrafa pakkagagnatengingu við internetið.