Stillingar
Hægt er að stilla mismunandi valkosti símans.
Þjónustuveitan kann einnig að senda þér þessar stillingar.
Veldu Valmynd > Stillingar > Samskipan og svo
einhvern eftirfarandi valkosta:
● Sjálfgefnar samskipanir — til að skoða hvaða
þjónustuveitur eru vistaðar í símanum og velja eina
þeirra sem sjálfgefna
● Virkja sjálfgefið í öllum forritum — til að virkja
sjálfgefna stillingu fyrir studd forrit
● Helsti aðgangsstaður — til að skoða vistaða
aðgangsstaði
● Tengjast við þjónustusíðu — til að hlaða niður
stillingum frá þjónustuveitunni
● Stillingar fyrir stjórnanda tækis — til að leyfa eða
leyfa ekki móttöku hugbúnaðaruppfærslna fyrir
símann. Það fer eftir símanum hvort hægt sé að velja
þennan valkost.
S t i l l i n g a r
© 2007 Nokia. Öll réttindi áskilin.
39
● Eigin stillingar — til að bæta handvirkt við nýjum
einkaáskriftum fyrir ýmsar þjónustur og til að virkja þær
eða eyða. Til að bæta við nýrri áskrift velurðu Nýr eða
Valkost. > Bæta við nýjum. Veldu þjónustugerðina og
færðu inn nauðsynlegar breytur. Til að virkja reikning
velurðu hann og svo Valkost. > Virkja .