Textaskilaboð
Tækið styður sendingu textaskilaboða sem eru lengri en
sem nemur lengdartakmörkunum stakra skilaboða. Lengri
skilaboð eru send sem tvö eða fleiri skilaboð.
Þjónustuveitan tekur hugsanlega gjald í samræmi við það.
Stafir sem nota kommur eða önnur tákn, ásamt stöfum
sumra tungumála, taka meira pláss en venjulegir stafir og
takmarka þannig þann stafafjölda sem hægt er að senda í
einum skilaboðum.
Lengdarvísir skilaboðanna efst í horni skjásins sýnir hversu
margir stafir eru eftir og í hversu mörgum hlutum þarf að
senda skilaboðin.
Áður en hægt er að senda textaskilaboð eða
tölvupóstskeyti er nauðsynlegt að vista númer
skilaboðamiðstöðvarinnar. Veldu Valmynd > Skilaboð >
Skilaboða-stillingar > Textaboð > Skilaboða-
miðstöðvar > Bæta við miðstöð, sláðu inn heiti og veldu
númer þjónustuveitunnar.