Um tækið
Þráðlausa tækið sem lýst er í handbókinni er samþykkt til
notkunar í EGSM 900 og GSM 1800 símkerfunum. Fáðu
frekari upplýsingar um símkerfi hjá þjónustuveitunni.
Við notkun þessa tækis skal hlíta öllum lögum og virða
staðbundnar venjur, einkalíf og lögmæt réttindi annarra,
þ.m.t. höfundarrétt.
Höfundarréttarvarnir geta komið í veg fyrir að hægt sé að
afrita, breyta, flytja eða framsenda myndir, tónlist (þ.m.t.
hringitóna) og annað efni.
Viðvörun: Við notkun allra aðgerða í þessu tæki,
annarra en vekjara, þarf að vera kveikt á tækinu. Ekki skal
kveikja á tækinu þegar notkun þráðlausra tækja getur
valdið truflun eða hættu.