Sérþjónusta
Ef nota á símann verður áskrift að þjónustuveitu fyrir
þráðlausa síma að vera fyrir hendi. Margir af valkostum
tækisins flokkast undir sérþjónustu. Ekki er hægt að nota
þessa valkosti í öllum símkerfum. Í öðrum símkerfum kann
jafnframt að vera farið fram á að þú skráir þig sérstaklega
fyrir þessari þjónustu. Þú færð leiðbeiningar hjá
þjónustuveitunni þinni ásamt upplýsingum og gjald fyrir
© 2007 Nokia. Öll réttindi áskilin.
10
þjónustuna. Sum símkerfi kunna að hafa takmarkanir sem
hafa áhrif á hvernig hægt er að nota sérþjónustu. Sum
símkerfi styðja t.d. ekki alla séríslenska bókstafi og
þjónustu.
Þjónustuveitan kann að hafa beðið um að tilteknar
aðgerðir væru hafðar óvirkar eða ekki gerðar virkar í
tækinu. Ef svo er birtast þær ekki í valmynd tækisins. Tækið
kann einnig að hafa verið sérstillt, t.d. kann heitum
valmynda að hafa verið breytt, röð þeirra og táknum.
Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.